Jæja vökunótt sjálfsagt framundan...var á næturvakt síðustu
nótt, á svona frekar erfitt með að snú sólahringnum oft við eftir
næturvaktir...en er náttulega næturhrafn af guðs náð fyrir!!!!! En
annars var þetta fjörugasta næturvakt hingað til......það kíktu 2
eiturhressar gellur í heimsókn......spurning um að fara sér hægar í
RAFGASIÐ næst, he he takið það til sín sem eyga
Anyway...ég og Hulda kíktum á ball með Todmobil á
föstudagskvöldið...svaka stuð þar, kannski frekar stappað en hvað
um það...þau standa alltaf fyrir sínu....sérstaklega þegar verið er
að smala atkvæðum...sem gekk örugglega ágætlega þar sem voru 750
manns á ballinu he he gott mál fyrir Eyþór!!!!!
Í gær var svo 3. í afmæli hjá Thelmu...vorum með fjölskyldukaffi
hérna í Háenginu...það var rosa fínt...alltaf gott að hitta
familiuna...fjörugur hópur!!
En annars er ég bara farin að hlakka til sumarsins...komin í
einhvern sumarfíling, það er búið að vera frábært veður, um 20
stiga hiti í dag og gróðurlyktin komin í loftið...jæja vonandi að
þetta endist eitthvað áfram...! Er annars búin að fá að vita að ég
fæ sumarfrí 17. júlí og þá er það beint strik á Lunga til að byrja
með...hver veit hvað maður gerir svo...allir möguleikar
opnir..innan skynsamlegra marka
Skylst annars að ég sé að fara í setuverkfall í vinnunni á næsta
þriðjudag...þar sem við erum að reyna að knýja fram launahækkun
sveitafélagsins til þeirralægst launuðu....sem er náttulega bara
gott mál....en það er spurning hvernig samviska manns verður ef til
kastanna kemur...og maður á bara að sinna frumþörfum
einstaklinganna sem eru þetta mikið fatlaðir....sennilega kemur það
í hlut foreldranna að koma þarna inn í....ég vona það alla
vega!
Jæja nóg í bili og þar til næst..................